Ágætu iðkendur, foreldrar og forráðamenn
Nú í byrjun mars 2011 mun breyting eiga sér stað á starfsemi yngri flokka hjá Knattspyrnufélaginu Ægi. Knattspyrnuskóli Ægis sem starfræktur hefur verið frá því í haust mun hætta og munum við taka upp hefðbundið æfingaplan og miða við hefðbundna skiptingu flokkanna þar sem nú styttist í sumarið og öll mótin.
Sú breyting mun einnig verða á starfsemi félagsins að Sveinbjörn Ásgrímsson mun tímabundið draga sig í hlé frá störfum fyrir félagið, en kemur vonandi aftur til baka næsta haust. Garðar Geirfinnsson mun framvegis taka að sér stöðu yfirþjálfara og sjá um alla umsýslu fyrir félagið er snýr að faglega hlutanum. Hann mun einnig stýra heimasíðu félagins www.aegirfc.is.
Frá og með 1.mars 2011 verða eftirtaldir þjálfarar með eftirtalda flokka:
8.,7. ka.+kv. og 5.fl.ka : Þjálfari ; Garðar Geirfinnsson
5. og 4.fl. kv. : Þjálfari ; Hólmfríður Smáradóttir
6. og 4.fl. ka. : Þjálfari ; Lárus Arnar Guðmundsson
M.fl. ka : Þjálfari ; Alfreð Elías Jóhannsson
Ef einhverjar spurningar vakna um fyrirkomulag eða eitthvað annað sem snertir starfið þá hafið samband við Garðar (846-1330) eða Össa (898-3285).
F.h. Stjórn Ægis
Guðbjartur Örn Einarsson (Össi)
Formaður
Image URL: /upload/images/Lógó/logo_thumb.jpg