Breytingar á æfingatöflu

16. nóv 2015

| Garðar

Breytingar á æfingatöflu

Breytingar verða á æfingatöflu frá og með 14.nóvember en þá mun Alfreð Elías Jóhannsson láta af störfum hjá félaginu.  Við starfi yfirþjálfara tekur Rúnar Birgisson og mun hann einnig þjálfa 3.fl., 4.fl. og 5.fl.  En fram að jólafríi mun Eva Lind Hafsteinsdóttir taka við þjálfun 6.fl., 7.fl. og 8.fl. Það verða engar breytingar á æfingatöflu fyrir utan að tími 6.flokks á fimmtudögum færist til kl: 15:45 þann sama dag. Við viljum biðja iðkendur og foreldra/forráðamenn afsökunar á því raski sem þessar breytingar hafa í för með sér, en vonandi verður það með minnsta móti.