Meistaraflokkur tók á móti ÍR á Þorlákshafnarvelli í dag. Leikið var við fínar aðstæður og talsvert fjölmenni á vellinum enda fylgdu margir gestunum sem voru í harðri baráttu við Gróttu um 2. sæti fyrir leikinn.
Leikurinn hófst fjörlega en gestirnir komust yfir með marki úr aukaspyrnu strax á 8. mínútu. En Aco jafnaði leikinn aðeins mínútu síðar þegar hann nýtti sér hik markvarðar ÍR og skoraði að harðfylgi. Jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði af fyrri hálfleik en fá færi litu dagsins ljós.
Í síðari hálfleikur þróaðist svipað og þeim fyrri lauk, liðin skiptust á að sækja en fá færi glöddu áhorfendur. En eftir því sem leið á leikinn opnaðist hann enda bæði lið sólgin í þrjú stig. Okkar menn fengu tvö upplögð færi til að komast yfir en inn vildi boltinn ekki. Gestirnir áttu líka sín færi en Matthew var vel á verði þegar þurfti. Niðurstaðan varð því 1:1 jafntefli.
Eftir þessa næstsíðustu umferð mótsins eru okkar menn með 23. stig, Aftuelding, Njarðvík og Reynir S. með 21. stig og Völsungur með 19. Það verður því svo sannarlega spenna í loka umferðinni sem fer fram næstkomandi laugardag. Þá mæta Ægismenn Aftureldingu í Mosfellsbæ og hefst leikurinn kl. 14:00.
