Baptiste Gateau áfram með Ægi

25. jan 2026

| sös

Baptiste Gateau áfram með Ægi

Baptiste Gateau hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnufélagið Ægir sem eru afar góð tíðindi fyrir félagið.

Gateau kom til Ægis fyrir síðasta tímabil og festi sig fljótt í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins árið 2025. Hann er 25 ára gamall miðvörður frá Rennes í Frakklandi og var áður í háskólabolta í Bandaríkjunum þar sem hann lék í fjögur ár.

Baptiste er stór og sterkur varnarmaður með góðan hraða sem hentar vel í miðvarðarstöðunni. Hann lék alls 18 leiki með Ægi á síðasta tímabili og skoraði tvö mörk. Á seinni hluta tímabilsins varð hann fyrir ökkla­meiðslum og missti af síðustu sex leikjunum.

Meiðslin eru nú að baki og Gateau er kominn á fulla ferð á ný. Hann er mættur í æfingahópinn og tekur fullan þátt í undirbúningi liðsins fyrir tímabilið í Lengjudeild karla 2026.

Við bjóðum hann hjartanlega velkominn til okkar að nýju og hlökkum til að sjá hann á vellinum í sumar.