5. flokkur karla á Olísmótinu

5. flokkur karla á Olísmótinu

Lið Ægis/Hamars tók þá í Olísmóti Selfoss síðustu helgi.  Félögin tefldu  fram tveimur liðum.  Strákarnir stóðu sig að venju vel en B liðið náði silfurverðlaunum í sínum móti aðeins hársbreidd frá gullinu.

Tap gegn toppliðinu í einum af betri leikjum sumarsins

Meistaraflokkur heimsótti Gróttu í gærkvöldi.  Grótta sat á toppi deildarinnar fyrir leikinn en okkar menn í 7. sæti. Það var ekki að sjá í leiknum hvort liðið væri í fyrsta sæti.  Ægismenn áttu afbragðs leik og sköpuðu sér talsvert af fínum færum.  Það voru hins...

Meistaraflokkur leikur gegn Gróttu í kvöld

Meistaraflokkur karla heldur á Seltjarnarnes í kvöld og leikur gegn Gróttu.  Grótta situr á toppnum en okkar menn ætla sér ekkert annað en sigur í kvöld og styrkja stöðu sína um miðja deild.  Leikurinn hefst kl. 19:00.

Góð ferð 3. flokks karla til Dalvíkur

B lið 3. flokks karla skellti sér til Dalvíkur í gær og lék þar gegn Dalvík/KF/Reyni.  Strákarnir áttu svo sannarlega góðan dag og unnu 7:2 sannfærandi sigur.  Í dag heldur síðan A liðið til Hornarfjarðar og leikur við Sindra.

Tap í bragðdaufum leik

Meistaraflokkur tók á móti Njarðvík á Þorlákshafnarvelli í kvöld.  Leikið var við flottar aðstæður í fínu veðri. Fyrri hálfleikur einkenndist af talsverðu miðjuhnoði og fá færi litu dagsins.  Ægismenn hefðu þó tvisvar getað komist yfir þegar boltinn datt fyrir fætur...