Auðveldur sigur hjá 4. flokk karla

23. jún 2008

| umsjon

Auðveldur sigur hjá 4. flokk karla

4. flokkur karla lék gegn Sindra á Þorlákshafnarvelli í gær.  Gestirnir frá Hornafirði veittu okkar mönnum ekki mikla keppni og var staðan 3:0 í hálfleik þrátt fyrir að Ægir spilaði gegn nokkuð sterkum vindi.  Í síðari hálfleik bættu svo okkar menn við 7 mörkum og sigruðu 10:0.
Markaskorarar leiksins voru Pálmi (4), Bjarni (2), Tómas (2), Guðmundur og Friðrik.

Næsti leikur liðsins er á fimmtudag gegn Snæfellsnesi á útivelli en þessi leikur átti að fara fram á föstudag en var flýtt.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/DSC00078_thumb.JPG