Arnar Logi Sveinsson knattspyrnumaður Ölfus 2013

29. des 2013

| Garðar

Arnar Logi Sveinsson knattspyrnumaður Ölfus 2013

Arnar-LÍ dag voru þeir íþróttamenn sem skarað hafa framúr á árinu heiðraðir í ráðhúsi Ölfus.  Útnefndir voru íþróttamenn í hverri íþróttagrein auk þess sem Íþróttamaður ársins var krýndur.  Að þessu sinni hlaut Styrmir Dan Steinunnarson þann heiður fyrir góðan árangur á árinu.

Arnar Logi Sveinsson var valinn knattspyrnumaður ársins.  Arnar lék með 3. flokki Ægis/Selfoss auk þess að koma við sögu í leikjum meistaraflokks aðeins 16 ára.  Einnig var Arnar í æfingahópi fyrir U17 KSÍ.  Til hamingju Arnar og aðrir verðlaunahafar.