Arnar Logi og Halldór Garðar á úrtaksæfingar fyrir U16

2. feb 2012

| umsjon

Arnar Logi og Halldór Garðar á úrtaksæfingar fyrir U16

Arnar Logi Sveinsson og Halldór Garðar Hermannsson leikmenn 3. flokk Ægis hafa verið valdir af KSÍ til að taka þátt í úrtaksæfingum fyrir U16 ára landslið Íslands.  Æfingarnar fara fram næstkomandi helgi í Kórnum og Egilshöll.  Það er hinn margreindi þjálfari Freyr Sverrisson sem sér um æfingarnar.  Það verður gaman að sjá hvernig strákarnir eiga eftir að spjara sig og við óskum þeim velgengni á stóra sviðinu.