Það verður mikið um að vera hjá hinum ýmsu flokkum Ægis þessa helgina.
4. flokkur karla leikur gegn Gróttu (A-lið) og Breiðablik (B-lið) á morgun laugardag en þeir leikir eru á útivelli. 4. flokkur kvenna spilar á Selfossi gegn Breiðablik einnig á morgun.
Á sunnudag leikur 2. flokkur karla gegn Aftureldingu á Selfossi. Meistaraflokkur karla leikur síðan gegn Hamri í Kórnum og hefst sá leikur kl. 16:00.
Yngstu flokkarnir verða einnig á fullu en 6. flokkur spilar gegn KFR í Hamarshöll á laugardag og á sunnudag spila stelpurnar í 7. flokk gegn Selfoss á sama stað.