4. flokkur kvenna lék á mánudaginn gegn Skallagrím á Íslandsmótinu og fór leikurinn fram í Borgarnesi. Stelpurnar áttu fínan dag og voru að leika mjög vel. Leiknum lauk með sigri Ægis 5:4 eftir að staðan hafði verið 3:1 í hálfleik. Það voru Aðalbjörg (2), Guðlaug (2) og Eva sem skoruðu mörk Ægis.
Annar sigurinn í röð hjá 4. flokk kvenna
25. jún 2008
| umsjon