Annað jafntefli hjá meistaraflokk

27. mar 2011

| umsjon

Annað jafntefli hjá meistaraflokk

Meistaraflokkur karla lék sinn annan leik í Lengjubikarnum í gær á Selfossi.  Að þessu sinni var mótherjinn Sindri frá Hornafirði.  Í byrjunarliði Ægis voru: Hlynur í marki. Trausti, Matti, Bjarni og Jóhann í vörninni.  Lárus, Ingimar, Michael, Vignir og Milan á miðjunni og Sæli frammi.

Það var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en það voru okkar menn sem komust yfir með marki frá Sæla á 30. mín. og þannig var staðan í hálfleik.
Sindramenn voru heldur sterkari í síðari hálfleik en náðu þó ekki að jafna fyrr en um 70. mín. og lauk leiknum með 1:1 jafntefli sem verða að teljast nokkuð sanngjörn úrslit.
Ægir er því með tvö stig eftir tvo leiki og eru í öðru sæti riðilsins.

Næsti leikur liðsins er sunnudaginn 3. apríl á Selfossvelli gegn KFR og hefst leikurinn kl. 18:00.