Alli kveður

11. nóv 2015

| Garðar

Alli kveður

aegir_leikmenn2015-1

Það verða talsverðar breytingar á starfi yngri flokka frá og með 14.nóvember. En þá mun Alfreð Elías Jóhannsson láta af störfum hjá félaginu. Hann mun þá halda á önnur mið og taka að sér aðstoðarþjálfun meistaraflokks ÍBV og mun einnig stýra þjálfun 2.flokks í Vestmannaeyjum.  Það er mikill missir fyrir félagið að Alli skuli hætta þar sem hann hefur unnið virkilega gott starf, bæði með meistaraflokkinn sem og yngri flokka.  En undir stjórn Alla náði félagið að komast upp í 2.deild og hefur leikið þar síðustu 3 tímabil. Um leið og við óskum honum velfarnaðar á nýjum vettvangi, viljum við þakka honum fyrir einstaklega vel unnin störf undanfarin ár.

Við starfi yfirþjálfara tekur Rúnar Birgisson og mun hann einnig þjálfa 3.fl., 4.fl. og 5.fl. Það verður auglýst síðar hvernig málum verður háttað með þjálfun á 6.fl., 7.fl. og 8.fl. og hvernig nánara form á starfinu verður í framhaldinu.  Við viljum biðja iðkendur og foreldra/forráðamenn afsökunar á því raski sem þessar breytingar hafa í för með sér, en vonum samt að það verði sem minnst.

Knattspyrnufélagið Ægir