Síðastliðið föstudag 3. júlí fóru Ægismenn í heimsókn til Afríkumanna sem tóku á móti okkur á Leiknisvellinum í Breiðholtinu, þar var leikið á ,, gervigrasi “ um hásumar og iðagrænir vellir með alvöru grasi þarna allt í kring…..
Leikurinn var einn sirkus frá upphafi til enda….ágætur dómari leiksins þorði vart að dæma leikbrot á leikmenn Afríku….. en það er bara svona.
Afríkumenn komust yfir en Ægismenn jöfnuðu undir lok fyrri hálfleiks. Í síðari hálfleik var engu líkara en heimamenn væru með sólsting…botlinn var í leik 30 sek. svo kom 2-3mín. hlé vegna ýmisskonar meiðsla…. Ægismenn fengu að líta rauðaspjaldið í tvígang!!!!!! frábær dómgæsla í boði þetta annars fallega kvöld. Gummi markmaður varði víti í stöðunni 1 – 1 og komið fram yfir venjulegan leiktíma og Ægismenn 2 færri…. á 95 mín. sleppur Atli Levy í gegn og tryggir Ægismönnum sigur í annars afar skrautlegum leik.
Áfram Ægir
Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0097_thumb.JPG