Ægir leitar að liðsstjóra fyrir meistaraflokk karla

25. feb 2026

| sös

Ægir leitar að liðsstjóra fyrir meistaraflokk karla

Við auglýsum eftir liðsstjóra fyrir meistaraflokk karla og óskum eftir áhugasömum einstaklingi til að taka þátt í starfi liðsins á komandi tímabili.

Um er að ræða sjálfboðastarf þar sem hlutverkið er lykilþáttur í umgjörð liðsins á leikdögum. Liðsstjóri sér meðal annars um uppsetningu klefa, umsjón með búnaði fyrir og eftir leiki og önnur tilfallandi verkefni í tengslum við leikjahald.

Starfið hentar einstaklingi sem er skipulagður, áreiðanlegur og vill vera virkur hluti af liðsheildinni.

Áhugasamir geta haft samband í gegnum netfangið aegir@aegirfc.is eða við Össa í síma 898 3285.