Ægir – KR

8. maí 2010

| umsjon

Ægir – KR

Ægismenn fengu lið KR – inga sem er spáð Íslandsmeistara titlinum í ár í heimsókn síðastliðið miðvikudagskvöld. Það var rennt blint í sjóinn og menn vissu ekki alveg við hverju var að búast. KR – ingar með allar sýnar stjörnur….. Fyrri hálfleikur var eign gestanna frá A-Ö enda stóðu leikar 6-0 þeim í hag í hálfleik. EN í seinni hálfleik þá skoruðum við tvö mörk á þá röndóttu og þeir aðeins eitt á okkur, mörk okkar gerðu þeir Svavar Berg sem var fermdur fyrir um það bil ári síðan… seinna mark okkar gerði Ingimar. Það er ekki hægt annað en að hrósa liðinu eftir þessa frammistöðu þrátt fyrir að lokatölur yrðu 7-2 fyrir gestina.

Áfram Ægir


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla 2010/IMG_2538_thumb.JPG