Æfingar að hefjast eftir jólafrí

5. jan 2009

| umsjon

Æfingar að hefjast eftir jólafrí

Æfingar hefjast af fullum krafti hjá yngri flokkum okkar nk. miðvikudag 07.01 ´09. Það er inni dagur, þ.e. einungis inniæfingar. Æfingar verða á óbreyttum tímum.
Garðar verður með 7. og 8. flokk. Jón Reynir Sveinsson verður með 6. flokk karla. Sveinbjörn verður með 5. flokk karla. Gyða Steina verður með stelpurnar 7. 6. og 5. flokk. 4. og 3. flokkur karla og kvenna undir stjórn Alexanders og þjálfara frá Hamarsmönnum. Það á eftir að útfæra nánar æfingatímana hjá stelpunum, annaðhvort verða þær á undan strákunum eða á eftir. En á fyrstu æfingarnar mæta strákar og stelpur á sama tíma.

Mbkv.
Sveinbjörn


Image URL: /aegirfc/upload/images/5. flokkur kvenna/HPIM1091_thumb.JPG