Æfingaleikur Mfl. karla

12. maí 2009

| umsjon

Æfingaleikur Mfl. karla

Í gærkvöldi spiluðu Ægismenn við nágranna okkar í Hamar æfingaleik hér á Þorlákshafnarvelli. Leikurinn fór fram þrátt fyrir að veðrið byði uppá strekking nokkuð öflugan. Leikmenn beggja liða reyndu samt sem áður að spila góðan fótbolta þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Staðan í hálfleik var 1 – 1. Í seinni hálfleik skoruðu gestirinir svo eitt mark til viðbótar og þar við sat. Það má hrósa báðum liðum fyrir það að spila ágætan fótbolta þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Áfram Ægir……


Image URL: /aegirfc/upload/images/Mfl. karla/DSC_0075_thumb.JPG