Æfingagjöld fram að áramótum….

19. okt 2008

| umsjon

Æfingagjöld fram að áramótum….

Stjórn Ægis hefur ákveðið að fella niður öll æfingagjöld fram að áramótum. Með þessu viljum við gera öllum kleift að æfa hjá okkur. Við erum sérstaklega að horfa á yngri hópanna okkar. Þar viljum við fá fleiri iðkendur. Við eigum mjög góða hópa, þar sem eru margir efnilegir iðkendur. Þessi ákvörðun um að fella niður æfingagjöldin verður vonandi til þess að við fáum til okkar fleiri iðkendur. Sérstaklega vil ég minnast á stelpurnar og vona að þeim fjölgi á æfingum hjá okkur.

Mbkv.
Sveinbjörn