Aðalfundur Ægis var haldinn í gær, sunnudaginn 6. nóvember. Dagskrá fundarinn var með hefðbundnu sniði.
Talsverðar breygingar urðu á stjórn félagsins að þessu sinni en Dagbjört Hannesdóttir og Sveinn Jónsson létu af störfum eftir langt og gott starf fyrir félagið. Ægir þakkar þeim báðum fyrir vel unnin störf.
Í nýja stjórn komu inn þau Guðrún Sigurðardóttir, Júlíus Kristjánsson og Guðbjörg Heimisdóttir. Júlíus verður ritari, Guðrún verður formaður foreldraráðs og meðstjórnandi og Guðbjörg verður meðstjórnandi.
Áfram í stjórn verða síðan Guðbjartur Örn Einarsson sem verður formaður og Þór Emilsson sem verður gjaldkeri.
Ægir bíður nýja stjórnarmeðlimi velkomna til starfa og óskar nýrri stjórn velfarnaðar í starfi.
Aðalfundur Ægis
7. nóv 2011
| umsjon