Skráning í fótbolta

Innskráning í Abler

Hér skráir þú þig inn í Abler til að halda utan um skráningar, greiðslur og upplýsingar tengdar Ægi.

Hæ hæ, hvernig getum við hjálpað þér?

Í þekkingargrunni Abler finnur þú leiðbeiningar og svör við algengum spurningum um skráningar, greiðslur, aðgang, æfingar og notkun kerfisins. Hér er allt á einum stað – skýrt, einfalt og aðgengilegt.

Stofna aðgang í Abler

Þú getur stofnað aðgang á mismunandi vegu, en það eru ákveðnar reglur sem gilda um nýskráningu.

Hér eru fjórar leiðir til að skrá sig í Abler:

  1. Nýskráning með rafrænum skilríkjum
    • Sæktu Abler appið eða farðu í gegnum vafra á markaðstorgið, veldu nýskrá og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum.
    • Í skráningarferlinu tengist þú sjálfkrafa börnum sem deila með þér lögheimili eða sem þú ert skráður í forsjá fyrir samkvæmt þjóðskrá.
  2. Ég er ekki lögheimilisforeldri eða með forsjá
    1. Ef þú ert búinn að stofna aðgang en ert ekki skráður sem lögheimilisforeldri né í forsjárskrá, getur forráðamaður boðið þér að tengjast barninu í Abler appinu og þú þarft að samþykkja það í tölvupósti.
  3. Börn án rafrænna skilríkja
    • Ef barn er ekki með rafræn skilríki getur forráðamaður sent boð í gegnum síma eða tölvupóst á barnið.
    • Barnið getur þá skráð sig inn og notað sinn eigin aðgang í Abler.
  4. Ef ég er ekki með kennitölu og rafræn skilríki
    • Veldu Nýskráning í Abler appinu.
    • Veldu landið þitt í skráningarferlinu.
    • Þú þarft hvorki kennitölu né rafræn skilríki til að ljúka skráningu.