4. flokkur karla hóf leik á Faxaflóamótinu í dag. A-liðið lék gegn Gróttu og B-liðið gegn Breiðablik en báðir leikirnir fóru fram á gervigrasinu á Selfossi. A-liði átti góðan dag, en þeir unnu sinn leik 5-1 og höfðu talsverða yfirburði. B-liðið átti talsvert erfiðara verkefni en þeir töpuðu 4-11 í miklum markaleik.
B-liðið á næst leik 4. nóvember en svo leika bæði liðin 17. nóvember.