6 stiga leikur í Sandgerði

6. jún 2013

| Garðar

6 stiga leikur í Sandgerði

DSC_0048Meistaraflokkur karla leikur gegn Reyni Sandgerði á Íslandsmótinu í kvöld og fer leikurinn fram í Sandgerði.  Fyrir leikin eru okkar menn með 6 stig en Reynir án stiga.  Því má segja að úrslit leiksins séu mikilvæg fyrir framhaldið en með sigri geta okkar menn fært sig nær toppliðunum en með tapi erum við nær botnliðunum.  Það er þó mikið eftir af mótinu en öll stig eru mikilvæg.

Við hvetjum alla til að skella sér á leikinn í kvöld og hvetja strákana til sigurs.