6. flokkur karla hefur keppt mikið að undanförnu. Hér ætla ég aðeins að fara yfir það hvernig þeim hefur gengið. Bónusmót Þróttar var haldið 9. – 10. júní í Laugardalnum í blíðskaparveðri. Þar fóru okkar menn hamförum og töpuðu ekki leik í mótinu. A- lið okkar keppti sem A-lið…… Þeir stóðu sig með mikilli prýði og náðu 3. sæti í flokki A – liða sem verður að teljast frábært hjá þeim. Þess má geta að A-lið okkar er skipað leikmönnum af eldra árinu og B-lið okkar skipa þeir yngri. B – lið okkar var sett inn í D – liða keppnina, þar sem við erum frá svo litlu bæjarfélagi er ekki reiknað með að við getum verið tvö góð lið………. En B – lið okkar keppti í d- liða keppninni við JAFNALRA sína og gerðu sér lítið fyrir og unnu mótið. Frábært hjá ykkur strákar.
Image URL: /aegirfc/upload/images/6.flokkur kk/PICT0360_thumb.JPG