Sameiginlegt lið Ægis/Hamars í 5. flokk karla lék í dag gegn Álftanesi á Háaleitisvelli (gervigrasið).
A-liðið byrjaði og spilaði jafnan og spennandi leik við Álftnesinga. Honum lauk með 2:2 jafntefli en okkar menn fengu ágætis færi til að klára leikinn.
B-liðið spilaði seinni leikinn og átti virkilega góðan dag. Þegar lokaflautan gall höfðu okkar strákar skorað 7 mörk gegn engu marki gestanna. B-liðið er sem stendur í efsta sæti riðilsins en Breiðablik á þó leik til góða einu stigi á eftir.
Nú er Faxaflóamótinu lokið en fyrstu leikir á Íslandsmóti eru 23. maí gegn Skallagrím á útivelli.