5. flokkur C og D með leiki í Hveragerði

19. jún 2013

| Garðar

5. flokkur C og D með leiki í Hveragerði

C og D lið 5. flokks karla léku á Íslandsmótinu í dag og fóru leikir þeirra fram á Hamarsvelli.  C liðið lék gegn ÍA og D gegn Aftureldingu.  C spilaði jafnan og spennandi leik en töpuðu 3:4.  D liðið mætti ofjörlum sínum en Afturelding voru virkilega sterkir.

Á mánudag í næstu viku leika A og B gegn Skallagrím en þeir leikir áttu að fara fram í dag. WP_20130619_001