Það er mikið að gera hjá 5. flokki í þessari viku. Liðið er að klára leiki sína á Íslandsmótinu og átti flotta leiki í dag og í gær.
A og B spiluðu í gær gegn Snæfellsnesi og unnu bæði stóra sigra, A vann 19:1 og B 5:0. Í dag spiluðu síðan C og D gegn Breiðablik. D tapaði 5:2 í hörkuleik en C vann góðan 5:3 sigur.
