4. karla á Hornafirði

1. júl 2007

| umsjon

4. karla á Hornafirði

4. flokkur karla hélt í langferð á föstudaginn alla leið til Hornafjarðar.  Þar áttu þeir leik á laugardaginn kl. 13:00 við Sindra.  Gist var á Hornafirði föstudagsnóttina og því voru menn ferskir þegar leikurinn hófst.  Að sögn Guðjóns þjálfara spiluðu strákarnir mjög vel og áttu talsvert meira í leiknum en Sindramenn eru með stóra og sterka stráka og náðu að landa sigri 2:1.  Það var Svavar Berg sem skoraði mark Ægis.


Image URL: /aegirfc/upload/images/4. flokkur karla/PICT0386_thumb.JPG