4. flokkur kvenna í þriðja sæti

3. okt 2007

| umsjon

4. flokkur kvenna í þriðja sæti

4. flokkur kvenna varð í þriðja sæti á HSK mótinu sem fór fram í gær á Selfossi.  Fyrst léku stelpurnar gegn Selfoss 1  og töpuðu 4:0.  Síðan léku þær gegn Selfoss 2 og áttu mun betri leik en hann endaði 2:1 fyrir Selfoss.
Sigmar þjálfari var nokkuð ánægður með stúlkurnar en flestar þeirra voru að spila sína fyrstu 11 manna leiki.  Þetta mót var því gott vegarnesti fyrir Faxaflóamótið sem hefst í október.