4. flokkur karla lék sinn síðasta leik á Íslandsmótinu í dag. Leikið var gegn Þrótti í Laugardalnum en fyrir leikinn voru heimamenn öruggir í efsta sæti riðilsins og höfðu ekki tapað leik.
Ægismenn gerðu sér lítið fyrir og unnu Þrótt 0:2. Strákarnir áttu sigurinn fyllilega skilið en þeir fengu ágætis færi til að bæta við mörkum. Topplið Þróttar fékk fá hættulega færi en náðu sér þó í vítaspyrnu sem Axel varð að sjálfsögðu.
Staða efstu liða eftir mótið er þá sú að Þróttur endaði með 25 stig í fyrsta sæti en Ægir og KR jöfn með 24 stig. KR var með betra markahlutfall og nær því öðru sætinu. Engu að síður frábær árangur hjá strákunum.
Image URL: /upload/images/4. flokkur karla 2011/CIMG2079 (800×600)_thumb.jpg