Sameiginlegt lið Ægir/Selfoss í 4. flokki-C lék síðastliðinn laugardag gegn Breiðablik og fór leikurinn fram í Kópavogi. Liðið vann sannfærandi sigur 6:2. Fimm krakkar voru frá Ægi í liðinu og stóðu sig öll vel. Björgvinn stóð vaktina í markinu en auk hans voru Írena, Sigurður Jóns, Daníel og Eiður Smári. Siggi og Írena náðu bæði að smella inn mörkum. Flott gegni hjá liðinu.
4. flokkur að gera góða hluti
24. nóv 2011
| umsjon