A og B lið 3. flokks karla léku gegn FH í Hafnarfirði á sunnudag. Heimamenn reyndust sterkari aðilinn þennan dag en A liðið tapaði 2:0 eftir að staðan var 0:0 í hálfleik. Leikur B liðsins var jafnari en þeir töpuðu 3:2 eftir að hafa komist 0:2 yfir. Eftir áreiðanlegum heimildum var mikil rangstöðulykt af tveimur mörkum FH og úrslitin því ekki sanngjörn.
3. flokkur lá gegn FH
12. feb 2013
| Garðar