3. flokkur lá gegn Breiðablik

18. júl 2013

| Garðar

3. flokkur lá gegn Breiðablik

C lið 3. flokks karla lék gegn Breiðablik á Þorlákshafnarvelli í gær.  Leikurinn var nokkuð jafn og okkar menn heldur sterkari.  Úrslit leiksins voru því í engu samræmi við leikinn en Blikar höfðu sigur 0:3.  Okkar strákar misnotuðu m.a. víti og fjölda færa en gestirnir skoruðu ansi ódýr mörk.  En svo er bara að læra af mistökunum og klára færin í næsta leik.

Lið 3. flokks karla í gær.

Lið 3. flokks karla í gær.