2. flokkur karla hefur svo sannarlega verið að gera góða hluti undanfarið. Þeir hafa unnið síðustu þrjá leiki og eru sem stendur í 5. sæti riðilsins með 21 stig og aðeins þremur stigum frá 2. sæti.
Strákarnir lögðu Keflavík 1:3 í síðasta leik og eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru mikil átök í leiknum og Fannar vel merktur eftir takkaskó andstæðinganna.
Næsti leikur hjá Ægi/Selfoss fer fram mánudaginn 19. ágúst á Selfossvelli.
